Á þessum tímum er eðlilegt að finna til kvíða og einmannaleika svo eitthvað sé nefnt. Því er mikilvægt að standa saman og láta okkur varða um hvert annað. Prestar Grafarvogskirkju bjóða upp á sálgæsluviðtöl auk þess sem tekið er við bænaefnum.

Þér er velkomið að hafa samband í síma 587 9070 eða senda póst á grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is

Jesús sagði: „Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11. 28)