Sunnudaginn 27. september verður guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Sr. Vigfús Þór Árnason, fyrrverandi sóknarprestur þjónar, organisti er Hákon Leifsson og kór Grafarvogskirkju leiðir söng.

Sunnudagaskóli verður á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir hafa umsjón með stundinni og undirleikari er Stefán Birkisson. Við syngjum og dönsum saman, hlustum á sögu og í lok stundarinnar fá börnin mynd og fjársjóðskistu.

Við leggum mikla áherslu á almennar og einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Velkomin!