Starf eldri borgara í Grafarvogskirkju hefst á ný þriðjudaginn 14. janúar.

Opið hús fyrir eldriborgara er í kirkjunni á þriðjudögum kl. 13:00 – 15:30. Starfið hefst á samsöng þar til helgistund hefst.  Þá er boðið upp á spil og handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15:00.