Þann 15. desember verður helgihald í Grafarvogssöfnuði eftirfarandi:

Útvarpsmessa kl. 11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Auður Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu og Bryndís Gylfadóttir á selló. Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju og Kór Grafarvogskirkju leið söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa kl. 13 í Kirkjuselinu. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Vox Populi leiðir söng og undirleikari er Stefán Birkisson.