Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju syngur og að auki kemur nemandi úr Söngskóla Reykjavíkur og mun syngja tvö lög. Stjórnandi er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskólinn er á sínum stað á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Dans, söngvar, sögur og töfrabrögð sýnd. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón.

Selmessa með altarisgöngu í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi syngur og undirleikari er Hilmar Örn Agnarsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!