Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa séra Guðrún Karls Helgudóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Barn verður borið til skírnar. Vox Populi leiðir söng og undirleikari er Stefán Birkisson.