Messa í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og séra Grétar Halldór Gunnarsson þjóna. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson. Eftir guðsþjónustuna er fundur með fermingarbörnum úr Kelduskóla, Rimaskóla og Vættaskóla og foreldrum þeirra.

Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð kirkjunnar. Söngvar, sögur og límmiðar. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og Aldís Rut Gísladóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.