Opið hús fyrir eldri borgara er í kirkjunni á þriðjudögum kl. 13:00 – 15:30. Í upphafi er söngstund í kirkjunni með Hilmari Erni og gestur dagsins er sr. Guðrún Karls Helgudóttir. Þá er í boði handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum kl. 15:00.