Vikulegt barna- og unglingastarf Grafarvogskirkju hefst á ný mánudaginn 8. janúar.
Tímasetningarnar í vetur verða eftirfarandi:
Sunnudagaskóli á sunnudögum kl. 11:00 á neðri hæð Grafarvogskirkju.
6-9 ára starf í Grafarvogskirkju á mánudögum kl. 16:00 – 17:00.
6-9 ára starf í Kirkjuselinu á fimmtudögum kl. 17:00 – 18:00.
10-12 ára starf í Grafarvogskirkju á mánudögum kl. 17:30 – 18:30.
Æskulýðsfélagið (8-10.bekkur) í Grafarvogskirkju á mánudögum kl. 20:00 – 21:30.
Nú er hægt að skoða dagskrár fyrir vorönn hér á heimasíðunni undir flipanum ,,Barna- og unglingastarf“.