Kór Grafarvogskirkju og barnakór Grafarvogskirkju ætla að halda saman notalega jólatónleika miðvikudaginn 13. desember kl. 19:30 í Grafarvogskirkju. Einsöngvarar verða Gissur Páll Gissurarson, Dísella Lárusdóttir og Þórdís Sævarsdóttir. Stjórnendur kóranna eru Hákon Leifsson og Sigríður Soffía Hafliðadóttir. Miðaverð er 3.000 kr.