Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð kirkjunnar. Brúðuleikhús, söngvar, sögur og límmiðar. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir.

Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox populi leiðir söng ásamt gestakór ArtGentum frá Barcelona. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson.