Í þessari viku var brjóstsykursgerð í barnastarfinu. Bæði börn og leiðtogar skemmtu sér mjög vel, enda er gaman að fá að búa til brjóstsykur. Meðal annars var búið til skógarberjabrjóstyskur, coca-cola brjóstsykur og hindberjabrjóstsykur. Allt bragðaðist að sjálfsögðu mjög vel.

Barna- og unglingastarfið í Grafarvogssöfnuði er sem hér segir:

6-9 ára starf á neðri hæð Grafarvogskirkju á mánudögum kl. 16:00 – 17:00

6-9 ára starf í Kirkjuselinu í Spöng á fimmtudögum kl. 17:00 – 18:00

10-12 ára starf á neðri hæð Grafarvogskirkju kl. 17:30 – 18:30

Æskulýðsfélagið (8-10.bekkur) á neðri hæð Grafarvogskirkju á mánudögum kl. 20:00 – 21:30