Árlegir jólatónleikar Vox Populi

Kórinn lofar notalegu andrúmslofti, hátíðlegri dagskrá og skemmtilegum tónleikum.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði, kaffi og smákökusmakk eftir tónleika.

Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.  Raddlistamaðurinn Arnar Ingi Richardsson tekur þátt ásamt, Kjartani Valdemarssyni píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni sem leikur á kontrabassa.

Almennt miðaverð er 2500 kr en 2000 kr fyrir eldriborgara og öryrkja, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Sjáumst í jólastuði!