Selmessa sunnudagsins verður með óvenjulegu sniði. Hún verður helguð umferðaröryggi og því að sjást í myrkrinu. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar og gestir frá lögreglunni og umferðarstofu taka þátt. Vox Populi syngur undir stjórn Stefáns Birkissonar.

Sunnudagaskólinn verður á sama tíma undir stjórn Matthíasar Guðmundssonar.