IMG_2760

Í vetur verður kyrrðarstund í Kirkjuselinu á fimmtudögum kl. 12:10. Þetta er ljúf stund með altarisgöngu, fyrirbænum og tónlist. Á eftir verður boðið upp á kaffisopa.

Kyrrðarstundirnar verða ekki í kirkjunni á miðvikudögum eins og hefur verið undanfarin ár heldur færast þær upp í Kirkjusel og verða á fimmtudögum.

Það er upplagt að skella í Kirkjuselið í matartímanum í hádeginu og fá andlegt fóður, gott samfélag og kaffi!