Friðrik ÓmarTónleikaferð Friðriks Ómars hefst í Grafarvogskirkju fimmtudagskvöldið 20. Mars kl. 20:30

KVEÐJA
-sálmar og saknaðarsöngvar-

Platan KVEÐJA með Friðriki Ómari kom út í nóvember á sl. ári. Platan varð ein sú mest selda á landinu fyrir jólin en hún innihélt ýmsa sálma og saknaðarsöngva flutta af Friðriki Ómari í frábærum útsetningum hans sjálfs
og Þóris Úlfarssonar píanóleikara. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að fylgja velgengni plötunnar eftir í kirkjum víðsvegar um landið í mars og apríl 2014. Til að auka á upplifun gesta hefur grafíski hönnuðurinn Ólöf Erla Einarsdóttir hannað hreyfimyndir sem sýndar verða meðan á tónleikunum stendur. Ólöf Erla hefur hlotið ýmsar viðurkenningar hérlendis og erlendis fyrir draumkennda og ævintýralega grafík sína. Saman munu þau sjá til þess að gestirnir upplifi tilfinningaríka stund þegar lög lög eins og Hærra minn guð til þín, Heyr mína bæn, Kveðja, Söknuður, Í bljúgri bæn og Ave Maria munu verða flutt af Friðriki Ómari og félögum.

Miðaverð er aðeins 2.500 krónur en miðasala er einungis við innganginn, húsið opnar kl. 20:00.