siglufjordurSunnudaginn 7.júlí kl.16:00, við lok þjóðlagahátíðar á Siglufirði, verður minnisvarði um Séra Bjarna þorsteinsson tónskálds og heiðursborgara Siglufjarðar vígður. Einnig verður vígt svo nefnt Bjarntorg skreytt íslensku stuðlabergi .
Myndstyttuna hefur listakonan Ragnhildur Stefánsdóttir gjört. Einstaklega vel gerð stytta.
Bjarntorgið er hannað af Fanney Hauksdóttur arkitekt. Þór Sigmundsson steinsmiður vann allt steinverkið.

Minnisvarðinn og Bjarnatorgið verður afhjúpað af gefendum verksins. Þeir eru Arnold Bjarnason afabarn Séra Bjarna, sem gefur myndstyttuna og Siglfirðingurinn Páll Samúelsson, sem gefur efni og vinnu við Bjarnatorgið. Áður hefur Páll gefið svonefndar kirkjutröppur, sem sitja sinn svip á bæinn.Áður hefur Arnold gefið myndarlegar gjafir til kirkjunnar Hafi þeir báðir bestu þakkir fyrir einstakan hug til Siglufjarðar og Siglufjarðarkirkju.

Hátíðin sunnudaginn 7. júlí fer fram á kirkjutröppunum. Tvö lög verða leikinn á trompet frá kirkjuturni. Lögin Blessuð sértu sveitin mín og Ég vil elska mitt land eftir séra Bjarna. Sigurður Hlöðversson formaður sóknarnefndar leikur á trompetinn.

Góðir gestir verða með okkur á hátíðinni meðal annarra Forsætis- og þjóðmenningarráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, en hann er tengdasonur Páls Samúelssonar, og Siglfirðingurinn Illugi Gunnarsson Mennta og menningarmálaráðherra.
Ávarp, sem fjallar um Séra Bjarna og áhrif hans á íslenska menningu, verður flutt.
Mannvirkin blessuð.

Allir eru velkomnir á þessa hátíð. Vonandi verður hefðbundið „siglfirskt veður“ , stafalogn og um tuttugu stiga hiti.
Sjáumst heil á „Bjarnahátíð“ þann 7. júlí kl. 16:00.