Minning_um_ohreinan_engill-175x271

Hópur áhugafólks um góðar bókmenntir ætlar að hittast á mánudagskvöldum kl. 20:00, rýna í skáldsögur, japla á góðgæti og sötra te/kaffi.  Sumsé yndisleg mánudagskvöld við yndislestur og það eina sem vantar ert þú!

Komdu og vertu með, við ætlum að byrja á bókinni, Minning um óhreinan engil, eftir Henning Mankell, höfund bókanna um lögregluforingjann Wallander.   Ummæli um bókina má finna hér:  http://www.landogsaga.is/section.php?id=10003&id_art=11151

Áhugasamir verði sér úti um bókina og lesi bls. 1-67, fyrir mánudagskvöldið 28. janúar, en þá mun hópurinn hittast yfir kaffi og kruðerý og rýna í efnið.   Hópurinn hittist öll mánudagskvöld þar til sagan verður á enda lesin.  Komið inn um aðalinngang kirkjunnar!

Björg Ólafsdóttir og
Lena Rós Matthíasdóttir