Hin árlega samvera syrgjenda á aðventu verður haldin í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 6. desember kl. 20:00.   Samveran er unnin í samstarfi Nýrrar dögunar, Landspítala og Þjóðkirkju.  Erfitt getur reynst að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá.    Samveran er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í  þessum aðstæðum. 

Jólasálmar

Hamrahlíðarkórinn

Hugvekja: sr. Lena Rós Matthíasdóttir

Minningarstund: Kirkjugestir geta tendrað ljós og minnst þannig látinna ástvina sinna

Samveran er túlkuð á táknmál

Léttar veitingar eftir samveruna

Landspítalinn, Þjóðkirkjan og Ný Dögun