Grafarvogskirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11:00 – Við minnumst sérstaklega þeirra sem látist hafa á árinu. Biskup Íslands, frú Agnes M Sigurðardóttir prédikar og prestar safnaðarins þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Hákons Leifssonar, organista. Garðar Thor Cortes syngur einsöng.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 – Á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Borgarholtsskóli:
Sunnudagaskóli kl. 11:00 – Umsjón hefur Gunnfríður Tómasdóttir
Gospelmessa kl. 17:00 – Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Vox Populi syngur undir stjórn Hilmars Arnar Hilmarssonar, organista.

Velkomin!