Fyrirlestur um makamissi verður 1. nóvember kl. 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Fyrirlesarar verða Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur og Hulda Guðmundsdóttir guðfræðingur.  Þá verður einnig opið hús þetta sama kvöld og hefst það kl. 19 á sama stað.  Í kjölfar fyrirlestrarins fara af stað tveir hópar sem hittast munu vikulega.  Sjá nánar:

1. Að missa maka í blóma lífsins.
Safnaðarheimili Háteigskirkju fimmtudagskvöld kl. 20.
Byrjar 8. nóvember og verður í sex skipti.
Hulda Guðmundsdóttir leiðir hópinn khulda@hive.is

2. Að missa maka á fullorðinsárum (í samvinnu við Krabbameinsfélagið).
Húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 kl. 14:30 á þriðjudögum.  Byrjar 6. nóvember og verður vikulega í sex skipti.  Ásdís Káradóttir asdisk@krabb.is. og Hulda Guðmundsdóttir leiða hópinn.