Sunnudaginn 20. maí kl. 14:00 verður hin árlega átthagamessa Siglfirðingafélagsins haldin í Grafarvogskirkju.  Hátíðartón séra Bjarna Þorsteinssonar flutt.  Kór Grafarvogskirkju leiðir safnaðarsöng.  Stjórnandi er Hákon Leifsson.  Þorvaldur Halldórsson syngur í messunni og í kaffisamsætinu eftir messu.  Gunnar Rafn Sigurbjörnsson fyrrverandi skólastjóri og bæjarstjórnarmaður á Siglufirði flytur hugleiðingu.  Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson sjúkrahúsprestur þjónar ásamt fyrrverandi sóknarpresti á Siglufirði séra Vigfúsi Þór Árnasyni.  Siglfirðingakaffi á vegum Siglfirðingafélagsins eftir messu.  Verið öll hjartanlega velkomin!