Hið árlega páskaeggjabingó Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldið í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 2. apríl kl. 19:30. Vinningar eru sem fyrr páskaegg af mörgum stærðum. Verð á bingóspjöldum er 250 kr. Enginn posi er á staðnum svo vinsamlegast takið með reiðufé.
Mætum í páskaskapi og tökum fjölskylduna með!