Miðvikudaginn 21. mars kl. 20.00 verður prjónakaffi í Grafarvogskirkju.  Búið er að skipta um perur í loftinu og því má vænta þess að lýsingin sé mun betri en síðast.  Kaffi á könnunni og þau sem vilja geta komið með meðlæti.  Allir eru hjartanlega velkomnir, líka þau sem ekki hafa neitt á prjónunum!