Grafarvogskirkja
Guðsþjónusta með þátttöku Gídeonmanna kl.11:00 – Séra Vigfús Þór Árnason þjónar ásamt Gídeonmönnum, messuþjónum og fermingarbörnum. Sigurbjörn Þorkelsson prédikar. Hákon Leifsson spilar og stjórnar kór kirkjunnar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 á neðri hæð – Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og séra Lena Rós Matthíasdóttir. Stefán Birkisson spilar.

Borgarholtsskóli
„Ástin mín“ Ljóðaljóðamessa kl. 11:00 – Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar ásamt Höllu Stefánsdóttur guðfræðinema, messuþjónum og fermingarbörnum. Vox Populi syngur kærleiksríka sálma undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 – Umsjón hefur Linda Jóhannsdóttir.

Velkomin!