Þann 19. janúar kl. 20:00 verður haldinn fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju.  Fyrirlesari verður sr. Lena Rós Matthíasdóttir.  Fyrirlesturinn er öllum opinn og ekki bundinn þátttöku í sorgarhópum.  Í kjölfarið verður áhugasömum boðið að skrá sig í sorgarhópa fyrir fólk sem misst hefur maka.

Ath! þessum hópi verður skipt í yngri og eldri, ef þátttaka leyfir.

Hóparnir hittast í Grafarvogskirkju á fimmtudagskvöldum kl. 20:00.  Tímabilið er frá 26. jan – 1. mars.  Nánari upplýsingar veitir séra Lena Rós Matthíasdóttir, srlenaros@grafarvogskirkja.is