Nú eru komnar myndir frá fyrsta sunnudegi í aðventu.  Margt fólk lagði leið sína í kirkju um kvöldið.  Ræðumaður var Davíð Þór jónsson, guðfr.  Fermingarbörn fluttu helgileik, kirkjukórinn, Vox Populi og Barnakór Hamraskóla fluttu aðventu- og jólalög og nemendur úr Tónlistarskóla Grafarvogs léku á harmónikkur.  Sjá myndir hér.