Í kvöld, þann 23. júlí kl. 20:00 verða bænaljósin tendruð og beðið fyrir fjölskyldum fórnarlamba hryðjuverkaárásanna í Osló og Útey.
Sóknarbörn Grafarvogssóknar eru hvött til að flagga í hálfa stöng og koma til kirkju í einhuga bæn.

Allir velkomnir!

Prestur:  Lena Rós Matthíasdóttir
Organisti:  Guðlaugur Viktorsson
Einsöngur:  Einar Clausen