Séra Bjarni Þór Bjarnason prestur í Grafarvogssókn og séra Sigurður Grétar Helgason sóknarprestur á Seltjarnarnesi munu hafa vistaskipti í eitt ár frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Um er að ræða embættismannaskipti, sem lið í því að gefa starfsfólki kleift að afla sér sem víðtækastar reynslu.
Aðstæður eru ólíkar innan prestakallanna, því að á Seltjarnarnesi starar einn prestur en í Grafarvogi, stærstu sókn landsins, starfa fjórir prestar og einn djákni.