Fyrsta prjónakaffið gekk glimrandi vel og þangað mætti góður hópur með handavinnuna sína. Ákveðið var að þriðji fimmtudagur í mánuði væri góður dagur fyrir prjónakaffið í framtíðinni og átti næsta kaffi að vera fimmtudaginn 19. maí. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að gefa þessum góða hópi gott sumarfrí og taka upp þráðinn aftur í lok sumars. Stefnt er að því að hittast aftur þriðja fimmtudag í ágúst.
Sjáumst heil í haust!