Lengi hefur verið beðið eftir því að boðið yrði upp á prjónakaffi í Grafarvogskirkju og nú er loksins komið að því. Fyrsta skiptið verður fimmtudaginn 7. apríl kl. 20:00. Þú ert velkomin/n í kirkjuna með handavinnuna eða jafnvel saumavélina þar sem við munum skiptast á uppskriftum, hugmyndum, drekka kaffi og eiga samfélag með skemmtilegu fólki.
Þetta er ekki kynbundið kaffi!