Þriðjudaginn 25. janúar kl. 20:00 verður fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju.  Fyrirlesari verður séra Lena Rós Matthíasdóttir.  Í kjölfarið verður boðið upp á samfylgd í sorgarhópum fyrir þau sem misst hafa maka.  Raðað verður í hópa eftir aldri og reynt að hafa fólk af sama aldursskeiði innan hvers hóps.  Hægt er að koma á fyrirlesturinn án þess að skrá sig í hóp.  Upplýsingar veitir séra Lena Rós Matthíasdóttir, srlenaros@grafarvogskirkja.is