Klarup stúlknakór, er meðal bestu stúlknakóra í Danmörku, í kórnum eru 35 stúlkur á aldrinum 14 til 25 ára og eru í ár að fagna 30 ára starfsafmæli.

Þetta er kór sem byggir á norrænni sönghefð, og syngur kórinn aðallega norræna tónlist og klassíska kirkjutónlist. Kórinn hefur sungið með sinfóníuhljómsveit Álaborgar, og einnig með hljómsveit danska útvarpsins.

Árið 2002 sungu þær með Jean Michel Jarres á tónleikum sem nefndir voru “Aero” sem var sjónvarpað víða um heim.

Kórinn hefur ferðast víða um heim, síðasta ferð þeirra var árið 2008 til Canada.

Kórinn heldur tónleika á eftirtöldum stöðum:

 

Grafarvogskirkja Þriðjudaginn – 6. júlí kl. 20.00

Skálholtskirkja Miðvikudagurinn – 7. júlí kl. 20.00

Selfosskirkja  Laugardagurinn – 10. júlí kl. 17.00

Víkurkirkja mánudaginn – 12. júlí kl 20

Norrænahúsið Þriðjudagurinn – 13. kl. 20