Fimmtudaginn 3. júní, kl. 17:00 mun Margrét Björnsdóttir, fyrir hönd Fræðsludeildar Þjóðkirkjunnar, kynna fyrir Grafarvogssöfnuði ,,Ljósaskrefin“ – nýja umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar.  Hugmyndin er að udirrita viljayfirlýsingu Ljósaskrefanna á sóknarnefndarfundi fimmdudaginn 10. júní, n.k. að biskupi Íslands, hr. Karli Sigurbjörnssyni viðstöddum. 

Kynningarfundurinn 3. júní, kl. 17:00 stendur öllum Grafarvogsbúum opinn og hvetjum við þau ykkar sem áhuga hafið á ,,grænni“ hugsun að koma og kynna ykkur málið.

Hjartanlega velkomin!