Íbúar í Grafarvogssöfnuði hafa margir tekið sig til og heklað smekki handa börnum sem skírð eru í söfnuðinum.

Eldri borgarar sem hittast í kirkjunni einu sinni í viku riðu á vaðið en nú býðst öllum, sem áhuga hafa, að vera með, óháð aldri eða kyni.

Á laugardaginn verður haldinn „Hekludagur“ í kirkjunni kl. 10:00-13:00 þar sem öllum sem áhuga hafa gefst tækifæri til að hekla smekki í samfélagi við skemmtilegt fólk. Markmiðið er að hin eldri gefi þeim yngri um leið og þau er boðið velkomin í samfélag kristinna. Prestar safnaðarins munu afhenda smekkina við skírnarathafnir.

Um 300 smekki þarft til þess að hvert barn sem skírt er í söfnuðinum í eitt ár, fái smekk.

Sælla er að gefa en að þiggja. Viltu vera með?                                     

Uppskriftir verða á staðnum og garn á vægu verði.                                                     

Leiðsögn í boði fyrir alla.

Heklum saman!