Þriðjudaginn 16. febrúar, kl. 20:00 verður fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju.   Fyrirlesari er sr. Lena Rós Matthíasdóttir.  Í kjölfarið verður boðið upp á lokaða sorgarhópa (ætlast er til þess að skráðir mæti öll kvöldin eða eins oft og hægt er).  Ætlunin er að hittast á þriðjudagskvöldum kl. 20-22 í sex vikur.   Hægt er að koma á fyrirlesturinn án þess að skrá sig í hópinn.   Nánari upplýsingar veitir séra Lena Rós Matthíasdóttir, srlenaros@grafarvogskirkja.is