Þriðjudaginn 6. október kl. 20:00 verður fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð í Grafarvogskirkju.  Fyrirlesari verður séra Gunnar Matthíasson, sjúkrahússprestur.  Í kjölfarið verður boðið upp á samfylgd í sorgarhópi fyrir þau sem misst hafa börn.  Hægt er að koma á fyrirlesturinn án þess að skrá sig í hópinn.  Upplýsingar veitir séra Lena Rós Matthíasdóttir, srlenaros@grafarvogskirkja.is