Grafarvogskirkja kl. 11:00: Guðsþjónusta með fermingarbörnum úr Hamra-, Húsa og Foldaskóla. Séra Vigfús Þór Árnason og séra Bjarni Þór Bjarnason þjóna fyrir altari. Organisti er Hákon Leifsson. Hjörleifur Valsson spilar á fiðlu og kór kirkjunnar leiðir söng.

Sunnnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar. Séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón: Rúna.

Borgarholtsskóli kl. 11:00: Guðsþjónusta. Séra Guðrún Karlsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti er Guðlaugur Viktorsson. Kvartet leiðir söng.

Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson, djákni.