Föstudaginn 3. október, kl. 14:00-16:00 verður haldið málþing í Þjóðminjasafninu, um kynheilsu og mannréttindi. Málþingið er haldið að frumkvæði fjölmenns hóps þjóðkirkjupresta í tilefni af útkomu bókar dr. Sólveigar Önnu Bóasdóttur, en bókin ber einmitt titilinn ,,Ást, kynlíf og hjónaband.“

Erindi flytja:
Guðrún D.Guðmundsdóttir. framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands:
„Ofbeldi og mannréttindi“
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur:
„Kynverund og kynverundarréttindi,“,
dr. Sigríður Guðmarsdóttir prestur:
„Menning, kirkja og hjónaband í hinsegin ljósi“ ,
Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur:
„Samkynhneigðin og ástin“
sr. Bjarni Karlsson prestur:
„Samkynhneigð og kristin siðfræði“

Fundarstjóri er Helgi Hjörvar Alþingismaður
Í upphafi mun dr. Sólveig Anna ávarpa og setja málþingið og í lokin verður boðið upp á fyrirspurnir til hennar og framsögumanna”

Allir hjartanlega velkomnir!