Hinn heimsþekkti fiðluleikari Shlomo Mintz leikur allar 24 Caprísur Niccolo Paganinis á tónleikum í Grafarvogskirkju þann 9. febrúar 2008 í tilefni fimmtugsafmælis síns og verður það í fyrsta sinn sem þær hljóma í heild sinni á tónleikum á Íslandi. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 og eru miðar seldir á midi.is og við innganginn. Sjá meira hér.