Sunnudagaskólinn hefst sunnudaginn 2.september klukkan 11.00. Sunnudagaskólinn er á tveimur stöðum í Grafarvogi, annars vegar í Grafarvogskirkju, gengið inn hjá bókasafninu og hins vegar í Borgarholtsskóla.

Foreldrar eru hvattir til þess að eiga skemmtilega og góða stund með börnunum sínum í sunnudagaskólanum. Þar er margt í boði; skemmtilegir og fjörugir söngvar, brúðuleikrit, biblíusögur, spjall og gaman.

Sjáumst í sunnudagaskólanum 🙂