Eins og undanfarin ár mun stuðningshópur fyrir þau sem hafa misst náinn ástvin verða starfræktur í Grafarvogskirkju. Starfið hefst þann 15. janúar kl. 20:00. Mun Birgir Ásgeirsson, fyrrverandi sjúkrahúsprestur, halda erindi um sorgina og ýmsar myndir hennar.

Í kjölfarið verður boðið upp á sorgarhópa sem hefjast mánudagskvöldið 22. janúar kl. 20:00 og verða vikulega í fimm vikur, undir handleiðslu sr. Lenu Rósar Matthíasdóttur. Fylgt verður eftir bókinni Til þín sem átt um sárt að binda eftir biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson.

Þeim sem hafa áhuga á að starfa í hópnum er bent á að hafa samband við presta Grafarvogskirkju í síma 587-9070, eða hjá séra Lenu Rós á netfanginu srlenaros@grafarvogskirkja.is