Námskeiðið er í boði Grafarvogssóknar og er því starfsfólki leikskólanna að kostnaðarlausu. Fjallað verður um
árangursríkt uppeldi, – það vex sem að er hlúð.

Grafarvogssókn býður starfsfólki leikskólanna í Grafarvogi á áhugavert námskeið laugardaginn 28. október nk., kl. 10:00-13:00.

Námskeiðið er í boði Grafarvogssóknar og er því starfsfólki leikskólanna að kostnaðarlausu. Námskeiðið fer fram í Grafarvogskirkju.

Með þessu móti vill kirkjan rétta fram hönd til þeirra og þakka þeim fyrir frábær störf í þágu samfélagsins. Störf þeirra eru afar mikilvæg, enda leggja þau grunn að velferð og framtíð barnanna í Grafarvogi. Góður leikskóli er hagur okkar allra.

Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

Kl. 10:00 – Námskeiðið sett

Kl. 10:10 – 11:10 – Árangursríkt uppeldi – aðferðir sem virka í samskiptum við börn
Sæmundur Hafsteinsson, sálfræðingur og félagsmálastjóri í Hafnarfirði
Fyrirspurnir og umræður

Fimmtán mínútna kaffihlé

Kl. 11:25 – 12:25 – Sjálfsstyrking kvenna –„Það vex sem að er hlúð“
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur í Grensáskirkju Fyrirspurnir og umræður

Kl. 12:30 – Hádegismatur

Kl. 13:00 – Námskeiðinu slitið