Messa í Grafarvogskirkju kl.11:00
Fermingarbörn og foreldrar þeirra úr Rima-, Engja-, Borga-, Korpu- og Víkurskóla eru sérstaklega boðin til guðsþjónustunnar. Eftir messu verður fundur um fermingarstarf vetrarins.

Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl.11:00
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
séra Önnu Sigríði Pálsdóttur.
Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Hörður Bragason.

Fermingarbörn og foreldrar þeirra úr Rima-, Engja-, Borga-, Korpu- og Víkurskóla eru sérstaklega boðin til guðsþjónustunnar. Eftir guðsþjónustu verður fundur, þar sem rætt verður um fermingarfræðsluna, ferminguna sjálfa og því sem henni tengist.

Að fundinum loknum verður hádegisverðahlaðborð á boðstólum, en beðið er um að hver fjölskylda komi með eitthvað á það hlaðborð.