Grafarvogskirkja – sunnudaginn 14. maí kl. 16:00

Krakkakór, Barna- og Unglingakór Grafarvogskirkju heldur sína árlegu vortónleika – uppskeruhátíð. Að tónleikum loknum verður haldið Pálínuboð þar sem öllum viðstöddum er boðið til veislu. Aðgangur er ókeypis

Grafarvogskirkja – sunnudaginn 14. maí kl. 16:00.

Krakkakór, Barna- og Unglingakór Grafarvogskirkju heldur sína árlegu vortónleika – uppskeruhátíð.

Flutt verða lög úr ýmsum áttum. Barnakórinn flytur söngleikinn ,,Litla Ljót” eftir Hauk Ágústson. Kórarnir munu syngja hvor í sínu lagi og svo allir saman.

Að tónleikum loknum verður haldið Pálínuboð þar sem öllum viðstöddum er boðið til veislu.

Stjórnandi Barna- og Unglingakórs: Oddný Jóna Þorsteinsdóttir. Stjórnandi Krakkakórs: Guðlaugur Viktorsson. Undirleikari: Gróa Hreinsdóttir.

Allir eru hjartanlega velkomnir Aðgangur er ókeypis