Á jólafundi safnaðarfélagsins, sem haldinn verður mánud. 5. des nk. kl. 20, verður margt góðra gesta. Edda Andrésdóttir les úr nýútkominni bók um Auði Eir Vilhjálmsdóttur, Þorvaldur Halldórsson flytur jólalög og Guðrún Heiða Guðmundsdóttir verður með sýnikennslu í skreytingum meðan gestir gæða sér á jólalegum veitingum, sjá auglýsingu.