Safnaðarfélag Grafarvogskirkju heldur haustfund sinn í safnaðarsal kirkjunnar mánudaginn 3. október nk. kl. 20:00.

Jóhanna Kristjónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, hefur dvalið langdvölum í miðausturlönum. Hún segir frá lífi kvenna þar, svarar fyrirspurnum og leiðir umræður meðan gestir gæða sér á kaffiveitingum. Mætið og takið með ykkur gesti.