Sunnudaginn 29. maí 2005 kl. 11:00, verður ,,flugmessa“ í Grafarvogskirkju. Mun þetta vera fyrsta guðsþjónusta þeirrar þeirrar tegundar hér á landi. Fjölmargir aðilar er tengjast flugi koma að messugjörðinni. Sjá svipmyndir frá samkomunni

Sunnudaginn 29. maí 2005 kl. 11:00, verður ,,flugmessa“ í Grafarvogskirkju. Mun þetta vera fyrsta guðsþjónusta þeirrar þeirrar tegundar hér á landi. Fjölmargir aðilar er tengjast flugi koma að messugjörðinni.

Séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur og séra Bjarni Þór Bjarnason þjóna fyrir altari. Benóný Ásgrímsson flugstjóri flytur hugleiðingu. Ritningarlestra les Signý Pétursdóttir, flugumferðarstjóri og bænir flytja Hertvig Ingólfsson, flugvirki og Rafn Jónsson, flugstjóri. Lokabæn flytur Björn Þverdal, flugvirki. Organisti er Ólafur W. Finnsson, flugstjóri.

Flugfreyjukórinn syngur ásamt félögum úr kvartett flugstjóra. Einsöng syngur Þuríður Sigurðardóttir, myndlistamaður og fv. flugfreyja, Jóhannes Bjarni Guðmundsson, flugmaður, leikur á fiðlu, Sigrún Hermannsdóttir, flugfreyja, leikur á flautu, Jón Hörður Jónsson, flugstjóri, leikur á kontrabassa og á trompet leika þau Berglind Jóna Þráinsdóttir, flugfreyja, Ingibjörg Lárusdóttir, flugfreyja og Sigurður Wiium, flugmaður.

Upp úr kl 10:00 munu fallhlífastökkvarar lenda við Grafarvogskirkju.
Listflug verður við kirkjuna um kl. 13:00. Flugvélar í áætlunarflugi munu fljúga yfir Grafarvoginn. LÍTIL ÞYRLA VERÐUR staðsett við Grafarvogskirkju.

Flugfólk er beðið að mæta í sínum einkennisbúningum þau sem eiga slíka og nota þá við störf sín.

Rekstaraðilar, starfsmannafélög og lífeyrissjóðir er tengjast flugrekstri bjóða upp á “flugkaffi” eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir!