Sunnudaginn 14. nóvember kl. 20:00 verður kvöldguðsþjónusta í Grafarvogskirkju. Tónlistarmennirnir KK og Ellen Kristjánsdóttir flytja nokkur lög. Hörður Bragason, organisti leiðir almennan söng ásamt þeim Hjörleifi Valssyni, fiðluleikara og Birgi Bragasyni, bassaleikara. Helgihald annast Séra Lena Rós Matthíasdóttir.