Þann 22. maí árið 2008 var Listfélag Grafarvogskirkju stofnað. Áður hafði undirbúningshópur unnið að því að móta lög og setja fram stefnumarkmið Listfélagsins. Góðar upplýsingar frá Listvinafélagi Hallgrímskirkju og Listafélagi Langholtskirkju hjálpuðu mikið til. Undirbúningshópurinn hafði unnið að listviðburðum í kirkjunni eins og að koma upp myndlistarsyningu Magnúsar heitins Kjartanssonar og einning stóð hópurinn fyrir listavöku á aðventu þar sem svo nefnd Grafarvogsskáld fluttu valda kafla úr ný útkomnum bókum sínum og fiðlusveit Tónskóla Grafarvogs lék.

Í gegnum árin hafa verið haldnar þó nokkrar myndlistarsýningar og ekki þarf að nefna það að fjöldi tónleika í kirkjunni hefur verið mikil. Ekki hafa allir þeir sem hafa viljað flytja tónlist sína í kirkjunni komist að eins og til dæmis á aðventunni. Kirkjan er talin mjög gott tónlistarhús og þessvegna er til staðar mikil tilhlökkun á safnaðarfólki og tónlistarfólki að fá í kirkjuna vandað orgel.

Í drögum að lögum Listfélagsins segir m.a. “Tilgangur félagsins er að efla listalíf í Grafarvogssókn. Með markmiðum sínum hyggst félagið ná því aða virkja sönfuðinn og styrkja þátt fagurra lista í helgihaldi Grafarvogskirkju og gangast fyrir listrænu starfi kirkjunnar”.

Á stofnfundinum bar undirbúningshópurinn fram eftirfarandi einstaklinga til stjórnarsetu í Listfélaginu:

  • Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Formaður
  • Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
  • Arnþrúður Ösp Karlsdóttir textilhönnuður og kórfélagi
  • Guðbjörg Lind Jónsdóttir myndlistarmaður
  • Kristín Marja Baldursdóttir rithöfundur
  • Pálmi Gestsson leikari
  • Sigmundur Ernir Rúnarsson ritstjóri og rithöfundur